Umferðaróhöpp og of hraður akstur í umdæmi Keflavíkurlögreglunnar
Umferðaróhapp varð í gærmorgun á Miðgarði í Grindavík þar rákust saman tvær vörubifreiðar, ekki urðu meiðsli á fólki. Síðdegis varð árekstur þriggja bifreiða á Hafnargötu í Keflavík. Engin meiðsli urðu á fólki. Ökumenn voru aðstoðaðir við útfyllingu á tjónaformi.
Á kvöldvaktinni hjá lögreglunni í Keflavík voru fjórir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Þá voru fjórir eigendur bifreiða kærðir fyrir að mæta ekki með bifreiðar sínar til skoðunar á tilsettum tíma.