Umferðaróhöpp á Grindavíkurvegi
Tvö umferðaróhöpp urðu á Grindavíkurvegi um síðustu helgi. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í hálku og hafnaði utan vegar. Önnur bifreið valt á veginum og hafnaði á vegriði.
Þá var bifreið ekið út af Reykjanesbraut og var hún óökufær eftir. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum.
Nokkrir ökumenn hafa verið kærðir fyrir hraðakstur á síðustu dögum. Fáeinir voru teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur og/eða aksturs án ökuréttinda.