Bygg
Bygg

Fréttir

Fimmtudagur 11. mars 1999 kl. 21:58

UMFERÐARLAGABROTIN DÝRKEYPT

Blm. Víkurfrétta verður bara að taka það á sig að verða talinn furðufugl en honum fannst áhugavert að lesa reglugerð frá ríkinu.Um er að ræða reglugerð nr. 280/1998, krossi sig hver sem vill, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum skv. þeim. Þar eru upptalin öll hugsanleg brot gegn umferðarlögunum og nokkur sem fæstum hefði dottið í hug að til væru, Sekta má veitingamenn, þjóna og bensínafgreiðslumenn um kr. 6000 fyrir að reyna ekki að koma í veg fyrir ölvunarakstur og bændur um sömu upphæð fyrir að reka búfé á vegi án leyfis lögreglustjóra, eru þetta kannski sams konar brot? Sérstaka athygli vöktu sektir gegn þeim sem gripnir eru við að aka sviptir ökuréttindum, litlar kr. 50.000,- við fyrsta brot og heilar kr. 100.000,- sé maður hirtur tvisvar. Blm. ætti líklegast ekki bifreið eftir fyrra brotið en jú það eiga margir nýlega jeppa hér suðurfrá. Í næstu viku hellum við okkur síðan í spennukaflann um gerð og búnað ökutækja - get ekki beðið. jak.
Bílakjarninn
Bílakjarninn