Sunnudagur 29. janúar 2006 kl. 13:17
Umferðarlagabrjótar í klóm lögreglunnar
Í nótt hafði lögregla afskipti af þremur ökumönnum vegna umferðarlagabrota. Um var að ræða hraðakstur, 114 km hraði þar sem hámarkshraði er 90 km/klst, stöðvunarskyldubrot og þriðji ökumaðurinn var með útrunnin ökuréttindi.