Umferðarátak næstu daga
Næstu daga munu lögregluembættin á suðvestanverðu landinu standa fyrir sameiginlegu umferðarátaki. Athygli lögreglumanna mun að þessu sinni sérstaklega beint að notkun bílbelta og öryggisbúnaðar fyrir börn. Einnig að brotum á reglum um notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur. Að átakinu standa lögreglumembættin í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Keflavík, Keflavíkurflugvelli og á Selfossi auk starfsmanna umferðardeildar ríkislögreglustjóra