Umferðar- og öryggisþing í dag
Fimmtudaginn 28. apríl verður Umferðar- og öryggisþing Reykjanesbæjar haldið í bíósal DUUS húsa kl. 17:00.
Á þinginu verða starfsmenn Umhverfis- og skipulagssviðs og aðrir fagaðilar með erindi. Tilgangurinn er að setjast saman til skrafs og ráðagerða og benda á hættur sem fyrirfinnast í bænum.
Mikilvægt er að fá foreldra grunn- og leikskólabarna með í þessa vinnu til að benda á hættumerkin í sínu nærumhverfi.