Umferð frá Leifsstöð beint inn í Reykjanesbæ
 Umferð frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar verður beint um Reykjanesbæ í dag samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Malbikun stendur yfir á Reykjanesbraut frá afleggjaranum við Hafnir og upp fyrir Grænás.
Umferð frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar verður beint um Reykjanesbæ í dag samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Malbikun stendur yfir á Reykjanesbraut frá afleggjaranum við Hafnir og upp fyrir Grænás. Malbikun vegarkaflans stendur til hádegis á morgun og þurfa ökumenn því að notast við hjáleiðina sem liggur í gegnum Reykjanesbæ á meðan.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				