Reykjanesbær aðventugarðurinn
Reykjanesbær aðventugarðurinn

Fréttir

Umfangsmikil og löngu tímabær viðhalds- og endurbótaverkefni á Keflavíkurflugvelli
Þriðjudagur 29. september 2020 kl. 10:44

Umfangsmikil og löngu tímabær viðhalds- og endurbótaverkefni á Keflavíkurflugvelli

Árið hefur verið viðburðaríkt hjá varnarmálasviði Landhelgisgæslu Íslands. Þrátt fyrir farsóttina hefur tekist að halda flestum forgangsverkefnum á sviði öryggis- og varnarmála gangandi og uppfylla þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands þegar kemur að öryggis- og varnarsamstarfinu. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar.

Á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli eru að jafnaði 100 – 300 liðsmenn aðildarþjóða Atlantshafsbandalagsins og verktakar sem dvelja á svæðinu tímabundið og á viðurkenndum hótelum á Suðurnesjum. Það er flókið og ábyrgðarmikið verkefni að tryggja heilsu og öryggi liðsmanna aðildarþjóða bandalagsins á þessum tímum, verkefni sem starfsmenn hafa unnið í nánu daglegu samstarfi við starfsfólk Landlæknisembættisins, landamæraeftirlit Lögreglustjórans á Suðurnesjum og Isavia.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Á sama tíma hafa verið til framkvæmdar stór sem smá viðhaldsverkefni á öryggissvæðunum. Á Stokksnesi standa yfir umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir á stöðvarhúsinu sem árlega verður fyrir miklum ágangi sjávar. Auk þess sem í gangi er átaksverkefni í hreinsa upp olíumengun fyrri tíma á svæðinu.
Á Bolafjalli er unnið að því að gera svæðið öruggara og aðgengilegra fyrir ferðamenn sem vilja sjá útsýnið af Bolafjalli í samvinnu við Bolungarvíkurkaupstað.

Viðamiklum uppfærslum og endurbótum á ratsjáreftirlitskerfunum á Miðnesheiði, Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli og Stokksnesi lauk í ágúst. Framkvæmdir voru að mestu kostaðar af mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins. Framkvæmdin var unnin af sérfræðingum Landhelgisgæslunnar, NATO og Lockheed Martin, framleiðanda búnaðarins.

Á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli eru til framkvæmdar umfangsmikil, löngu tímabær viðhalds og endurbótaverkefni.

Helstu framkvæmdir eru:

Endurbætur á æfingaaðstöðu Ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar. Hönnun og undirbúningi er lokið og er ráðgert að framkvæmdir hefjist á næstu vikum. Verklok við þennan áfanga eru áætluð vorið 2020.

Bygging gistiskála fyrir erlendan liðsafla. Útboði lauk í september og ættu framkvæmdir að geta hafist í lok október. Um er að ræða gistiskála sem rúmar 50 til 100 liðsmenn. Verklok eru áætluð haustið 2021.

Viðhald á þotuskýlum hefur verið í undirbúningi og munu framkvæmdir hefjast í haust og standa yfir til ársloka 2022.

Umfangsmiklar endurbætur standa yfir á flugskýli 831 á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Annars vegar er um að ræða verkefni sem er í umsjón bandaríska sjóhersins og kostað af Bandaríkjamönnum. Tilgangur verkefnisins er að bæta aðstöðuna hér á landi fyrir nýju kafbátaeftirlitsflugvélarnar, P-8. Helstu verkþættir eru breytingar á hurð, eldvarnakerfum og rafkerfum. Verklok eru áætluð vorið 2021.

Hins vegar eru verkefni sem kostuð eru af íslenska ríkinu og mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins. Helstu verkþættir eru klæðningar utanhúss, málning innan- og utanhúss ásamt fjölmörgum öðrum viðhaldsverkefnum. Verklok eru áætluð haustið 2021.

Flugskýlið er notað af Landhelgisgæslu Íslands, bandaríkjaher og aðildarþjóðum Atlantshafsbandalagsins en núna er þar þyrla danska flughersins í viðhaldsskoðun.

Bygging þvottastöðvar fyrir flugvélar. Verkefnið er í umsjón og kostað af bandaríska sjóhernum. Verklok eru áætluð vorið 2021.

Endurbætur á akstursbrautum flugvéla, flughlöðum og ljósakerfum á öryggissvæðinu innan Keflavíkurflugvallar. Endurbætur eru að hluta til að mæta kröfum um aukna umhverfisvernd. Verkefnið er kostað af bandaríska flughernum og eru framkvæmdir á vegum verkfræðideildar bandaríska sjóhersins. Verklok verða vorið 2021.

Í september var gerður samningur við ÍAV um stækkun á flugvélastæðum á öryggissvæðinu innan Keflavíkurflugvallar, byggingu á nýju flugvélastæði fyrir hættulegan farm og undirstöðum fyrir færanlega gistiaðstöðu. Verkefnið er kostað af bandaríska flughernum og eru framkvæmdir á vegum verkfræðideildar bandaríska sjóhersins.

Í samvinnu við Isavia er verið að undirbúa viðhald á akstursbrautum og flughlöðum á Keflavíkurflugvelli, framkvæmdir sem kostaðar verða af Mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins.

Í vinnslu er áætlun um uppgræðslu á svæðinu með trjám og öðrum gróðri. Við þá framkvæmd mun ásýnd svæðisins breytast.

Átak hefur verið í gangi við að ganga frá til geymslu hjá Þjóðskjalasafni, skjalasöfnum varnarliðsins, bygginganefndar flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, Ratsjárstofnunar, Varnarmálastofnunar og Landhelgisgæslu Íslands. Verkefnið hefur verið unnið með stuðningi frá Vinnumálastofnun.

VF jól 25
VF jól 25