Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Fréttir

Umfangsmikil kannabisræktun í heimahúsi
Föstudagur 5. ágúst 2011 kl. 11:41

Umfangsmikil kannabisræktun í heimahúsi

Í gær fimmtudaginn 4. ágúst stöðvaði fíkniefnadeild lögreglunnar á Suðurnesjum umfangsmikla kannabisræktun í heimahúsi á Suðurnesjum. Við húsleitina var lagt hald á um 200 kannabisplöntur á ýmsum ræktunarstigum. Einnig var lagt hald á búnað til ræktunar.

Húsráðandinn var handtekinn á staðnum og við yfirheyrslu viðurkenndi hann ræktunina og telst málið upplýst.
Lögreglan á Suðurnesjum minnir á fíkniefnasímsvarann, sem er 800-5005. En þangað er hægt að hringja nafnlaust með ábendingar um fíkniefnamisferli.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25