HSS
HSS

Fréttir

Umfangsmikil flugslysaæfing á laugardag
Fimmtudagur 10. nóvember 2011 kl. 09:27

Umfangsmikil flugslysaæfing á laugardag


Umfangsmesta flugslysaæfing landsins verður haldin á Keflavíkurflugvelli nk. laugardag.


Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Isavia ohf. efna til umfangsmikillar viðbragðsæfingar samkvæmt flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll næstkomandi laugardag, 12. nóvember.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar flugslyss á eða við Keflavíkurflugvöll. Æfingin er almannavarnaæfing þar sem allir viðbragðsþættir fyrstu klukkustundir eftir slys eru prófaðir. Líkt er eftir flugslysi við lendingu á Keflavíkurflugvelli og æfð samvinna viðbragðsaðila með áherslu á samhæfingu og virkni áætlunarinnar. Æfingin er umfangsmesta viðbragðæfing vegna flugsamgangna sem haldin er í landinu með reglubundnum hætti.


Þátttakendur í æfingunni eru allir viðbragðsaðilar á Suðurnesjum auk viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu, flugvallarstarfsmenn, slökkvilið, lögregla, landhelgisgæsla, björgunarsveitir, sjúkrahús, Rauði krossinn, flugrekendur og flugafgreiðsluaðilar, prestar og rannsóknaraðilar ásamt samhæfingarstöð almannavarna í Reykjavík auk sjálfboðaliða sem leika munu flugfarþega og aðstandendur, alls tæplega 300 manns. Undirbúningur æfingarinnar hefur staðið um allangt skeið en svo umfangsmikil æfing var síðast haldin á Keflavíkurflugvelli vorið 2009.