Umbætur hafnar við bræðsluhúsin í Sandgerði
Eigendur gömlu bræðsluhúsanna í Sandgerði, sem hafa verið bæjarbúum þyrnir í augum síðustu misseri, hafa loks hafist handa við að hressa upp á útlit svæðisins. Davíð Þór Sigurbjartarson, framkvæmdastjóri fjárfestingafélagins Hamars sem keypti byggingarnar árið 2004, sagði í samtali við Víkurfréttir að þar hygðust þeir hefja rekstur. Hann gat hins vegar ekki að svo stöddu gefið upp hvers konar starfsemi þar verði, né heldur hvenær af slíku yrði. Framkvæmdir munu halda þar áfram eftir því sem fyrirtækið getur.
„Fyrst og fremst erum við nú að snyrta í kringum okkur og gera umhverfið meira aðlaðandi,“ sagði Davíð Þór. „Við erum búnir að rífa allt ónýtt járn af þrónum og erum búnir að rífa niður hluta af elsta húsinu. Umhverfið þarna í kring þarf að vera betra en hefur verið og það heyrir líka allt til batnaðar,“ sagði Davíð Þór að lokum og vonaðist til þess að brátt yrði þarna blómlegur rekstur.
VF-myndir/Þorgils