Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Um 25.000 manns á hápunkti Ljósanætur
Laugardagur 7. september 2002 kl. 23:39

Um 25.000 manns á hápunkti Ljósanætur

Talið er að allt að 25.000 manns hafi verið á hápunkti Ljósanætur í Reykjanesbæ kl. 22 í kvöld þegar víkingaskipið Íslendingur sigldi upplýstur undir ljósum prýtt Bergið í Keflavík. Einar Ágúst söng sigurlagið Velkomin á Ljósanótt og þá hófst ein sú glæsilegasta flugeldasýning sem sett hefur verið upp í Reykjanesbæ á síðari árum.Steinþór Jónsson, formaður ljósanefndar, tók undir það að í ár hafi verið mun fleiri í bænum en í fyrra, þegar talið er að um 20.000 manns hafi verið á hápunkti hátíðarinnar. Hann vildi fara varlega í að áætla fjöldann en 25.000 manns væri nærri lagi. Lögreglan í Keflavík staðfestir þá tölu.

Myndin: Víkingaskipið Íslendingur siglir ljósum prýddur undir upplýstu berginu. VF-mynd: Tobías Sveinbjörnsson
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024