Um 2200 nöfn til stuðnings séra Sigfúsi
Nú hafa um 2200 skráð nöfn sína á undirskriftalista til stuðnings Sigfúsi B. Ingvasyni, presti í Keflavíkurkirkju. Undirskriftasöfnunin hefur staðið í sólarhring á netsíðunni http://sigfus.mis.is/
Stuðningsmenn sr. Sigfúsar B. Ingvasonar standa fyrir söfnun undirskrifta til stuðnings honum í kjölfar þess að valnefnd kaus að velja séra Skúla S. Ólafsson í embætti sóknarprests Keflavíkurkirkju. Málinu var vísað til biskups og mælti hann með því við kirkjumálaráðherra að velja séra Skúla S. Ólafsson til starfsins. Ráðherra skipar í embættið til fimm ára.
Undirskriftasöfnunin fer fram á netinu á slóðinni http://sigfus.mis.is/
Á síðunni segir:
„Undirritaðir íbúar í Reykjanesbæ lýsa yfir stuðningi við sr. Sigfús og skora á sóknarnefnd að endurskoða ákvörðun valnefndar um val á sóknarpresti.
Við teljum að niðurstaða valnefndar endurspegli ekki vilja íbúa í Reykjanesbæ.
Sr. Sigfús sem hefur starfað hér í bæ s.l. 13 ár. Á þeim tíma hefur hann náð til fjöldans og reynst sóknarbörnum sínum vel þegar á hefur reynt og áunnið sér traust og virðingu.“
Mögulegt er að fara inn á vefsíðuna með því að smella á auglýsingu sem er á milli frétta á forsíðu vf.is
Myndin: Séra Sigfús heima í stofu ásamt fjölskyldu sinni. Frá vinstri, Hanna Björk, Birta Rut, Laufey og Sigfús. Myndin birtist með viðtali Víkurfrétta við Sigfús á dögunum.