Um 200 slysavarnakonur á þingi í Reykjanesbæ
Helgina 21.-23. september nk. verður haldið Kvennaþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þetta þing er haldið fyrir allar konur í SL, hvort sem þær eru í slysavarnadeildum, kvennasveitum eða björgunarsveitum og er haldið annað hvert ár á mismunandi stöðum um landið.
Um 200 konur hafa skráð sig á þingið svo búast má við líflegu og fjörugu þingi þar sem Sirrý (Sigríður Arnardóttir) mun fara með þær í gegnum það hvernig á að ná til fjölmiðla til að kynna sig og starfið þeirra og að hafa gaman af því sem þær eru að gera.
Á sunnudeginum munu svo stöllurnar Anna Lóa og Þóranna láta þær vinna saman og velta fyrir sér hinum ýmsu spurningum um starf og verkefni sveitanna.
Að sjálfsögðu er líka boðið upp á skemmtun og á föstudeginum eftir setningu þingsins í Listasafni Duushúsanna. Þar geta þátttakendur notið þeirra listasýninga sem þar eru en einnig munu lista- og handverkssmiðjur bæjarins vera með opið á föstudagskvöldinu fyrir slysavarnakonurnar.
Á laugardagskvöldinu er svo boðið upp á skemmtun og ball þar sem þemað er að sjálfsögðu „Hernámsárin“ og heyrst hefur að sumar sveitirnar hafi lagt helling í að finna réttu fötin til að vera í á þessari skemmtun sem að sjálfsögðu er haldið í Officeraklúbbnum.
Í samtali við Víkurfréttir sagði Kristbjörg Gunnbjörnsdóttir, formaður kvennasveitarinnar Dagbjargar, að mikill undirbúningur sé búinn að eiga sér stað fyrir Kvennaþingið.
Undirbúningurinn hefur staðið allt sl. ár en um undirbúninginn sjá félagskonur í kvennasveitinni Dagbjörgu í Reykjanesbæ. Þær hafa víða fengið stuðning og vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem lagt hafa þeim lið í undirbúningi Kvennaþingsins sem verður haldið í Keili á Ásbrú um komandi helgi.
Örstutt um Kvennaþingið
Fundarstjóri Kvennaþings Slysavarnafélagsins Landsbjargar:
Olga Björt Þórðardóttir, Njarðvíkurmær, verður með stjórn á öllum málum hjá okkur og mun sjá til þess að dagskráin okkar standist, smalar okkur saman þegar við gleymum okkur í spjallinu við að kynnast betur og ræða saman um okkar hjartans mál og öll þau mikilvægu málefni sem við vinnum að.
Fyrirlesarinn okkar á laugardeginum
Sigríður Arnardóttir fjölmiðlafræðingur, fyrirlesari og rithöfundur sem allir þekkja undir gælunafninu Sirrý mun fara með okkur í gegnum það hvernig við eigum að ná til fjölmiðla til að kynna okkur og okkar starf, að njóta þess sem við erum að gera, að vera ekki of hógværar og lítillátar heldur láta ljós okkar skína og treysta á okkar eigin krafta og hæfileika og ekki síst að kynnast hvor annarri. Hún mun hvetja okkur til að laða fram það góða til að auðvelda okkur að sinna verkefnum okkar eins og við viljum vinna þau.
Veislustjóri kvöldsins:
„Það er draumur að vera með dáta“. Hún Mæja er ein af okkur og hefur þann góða hæfileika að geta skemmt öðrum með léttri og glaðlegri framkomu sinni ásamt því að komast skemmtilega að orði, geta fengið stóran hóp til að finnast hann vera einstakur og gleður svo sjálfa sig og aðra með gítarspili og léttum söng sem fær alla til að vilja taka undir með henni, að sjálfsögðu verður hennar eini og sanni Valli rútubílstjóri með og spilar undir með henni á harmonikuna.
Anna Lóa og Þóranna Kristín
Þær stöllurnar Anna Lóa og Þóranna Kristín verða með okkur á sunnudeginum og munu fá okkur til að kíkja í eigin barm, láta okkur ræða um hvað við viljum, hvernig við viljum og fleira áhugavert.
Anna Lóa er náms- og starfsráðgjafi að mennt og starfar sem slíkur hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Hún kennir líka sjálfstyrkingu enda er það staðföst trú hennar að gott sjálfstraust sé undirstaða aukinna lífsgæða. Anna Lóa hefur haldið fyrirlestra um hamingjuna út um allt land og heldur úti Hamingjuhorninu á FB ásamt vikulegum pistlum í Víkurfréttum. Hún stofnaði SKASS ásamt Þórönnu Kristínu og hafa þær brallað ýmislegt saman í framhaldi af því.
Þóranna K. Jónsdóttir er sérfræðingur í markaðsmálum og hefur frá sumrinu 2011 eflt markaðsstarf fjölda fyrirtækja með störfum sínum undir merkjum Markaðsmála á mannamáli. Þóranna er með MBA frá University of Westminster og hefur starfað við markaðs- og auglýsingamál í um áratug, m.a. fyrir Renault á auglýsingastofunni Publicis í London, hjá auglýsingastofunni Góðu fólki í Reykjavík og fyrir Sparisjóðinn. Sem verkefnastjóri fyrir Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar lagði Þóranna grunninn að starfssemi frumkvöðlasetursins í Eldey og sinnti þar ráðgjöf við frumkvöðla og fyrirtæki. Þóranna var leikkona í fyrra lífi, auk þess sem hún hefur starfað í meiri eða minna mæli sem söngkona frá því á unglingsárunum. Þóranna stofnaði SKASS ásamt Önnu Lóu og hafa þær gert ýmislegt kraftmikið og skemmtilegt saman í framhaldinu.