Um 20.000 manns á hápunkti Ljósanætur
Þúsundir gesta nutu skemmtunar og menningar á Ljósanótt í Reykjanesbæ sem haldin var sl. laugardag en talið er að um 20.000 manns hafi verið viðstaddir þegar ljósin á Berginu voru kveikt um kvöldið. Veðurguðirnir léku við gestina sem fylgdust með tendrun ljósanna og glæsilegri flugeldasýningu í logni og mildu veðri.
Hefur áhrif á markaðssetningu Suðurnesja
Johan D. Jónsson, ferðamálafulltrúi Reykjanesbæjar og fulltrúi í undirbúningsnefnd Ljósanætur sagði að þátttaka hefði farið fram úr björtustu vonum. „Það hefur mikið gildi að sá gestafjöldi sem kom, upplifi bæinn á svo jákvæðan hátt sem raun bar vitni. Þetta hefur vissulega áhrif á markaðsetningu samfélagsins hér suðurfrá í heild sinni en vert er að geta þess að þessi eina kvöldstund hjá okkur, dró að sér fleiri gesti en fjölmennustu útihátíðir, eða um 15-20 þúsund manns“, segir Johan.
„Það var rosalega hlýtt að ganga í gegnum mannfjöldann. Allir sem ég ræddi við sögðust vera mjög ánægðir og glaðir með hvernig til tókst. Eftir á að hyggja, voru ýmsir hnökrar í framkvæmdinni en þeir voru samt svo smáir að það fór lítið fyrir þeim. Eitt af því sem við þurfum að athuga á næsta ári er að hafa fyrirtæki, sýniningar, verslanir o.fl., opið lengur fram á kvöld og fjölga kaffistöðum um helming og rúmlega það.“
Brjálað að gera
Fjölbreytt dagskrá var allan daginn á svokölluðu Duus-svæði. Kaffi Duus var því þéttsetið frá morgni og langt fram á nótt að sögn Sigurbjörns Sigurðssonar veitingamanns, eða Bóa á Duus.
„Við vorum með kaffihlaðborð eftir hádegi og hlaðborð um kvöldið, bæði fisk- og kjötrétti. Við vorum líka með útigrill og hoppukastala allan daginn. Það var brjálað að gera og tvísetið í matnum. Mummi Hermanns spilaði undir dansi um kvöldið og þá var dansað á veröndinni og inni í salnum. Stemningin var góð og allt kjaftfullt af fólki“, segir Bói og bætir við að hann sé sérstaklega ánægður með skipulagningu og framkvæmd Ljósanætur. „Skipulagið var gott og dagskráin skemmtileg. Slíkur atburður hefur gífurlega þýðingu fyrir fyrirtæki og þjónustu í bæjarfélaginu, þar sem við fáum góða kynningu á því sem við erum að gera hér og auk þess þá hvetur þetta fólk sem er með rekstur, til nýbreytni.“
Löng röð í kaffið
Verslunin Stapafell er í alfaraleið við Hafnargötu og Guðrún Hákonardóttir, verslunarmaður var sömuleiðis mjög ánægð með daginn. „Ég var að kynna kaffivél en margir misskildu auglýsinguna og héldu að ég væri að kynna kaffi. Þar af leiðandi myndaðist löng röð til að fá frítt kaffi“, segir Guðrún og hlær en henni fannst gaman að sjá hve margir brottfluttir Keflvíkingar létu sjá sig. „Það var eins konar Þorláksmessustemning og mér fannst fólk almennt mjög ánægt. Drykkjuskapur var lítið áberandi sem er mjög jákvætt en það var t.d. mun meira áberandi á Menningarnótt Reykjavíkur. Ljósanótt hefur tvímælalaust jákvæð áhrif á bæjarlífið og mér finnst að þessu eigi að halda áfram og efla Ljósanótt“, segir Guðrún að endingu.