Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Um 18 milljónir rúmmetra af kviku hafa bæst við og þrýstingur í kerfinu er að aukast
Föstudagur 24. maí 2024 kl. 16:24

Um 18 milljónir rúmmetra af kviku hafa bæst við og þrýstingur í kerfinu er að aukast

Það hafa mælst um 140 skjálftar í kringum kvikuganginn síðustu tvo sólahringa, allir undir 2,0 að stærð. Skjálftarnir voru flestir á svæðunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells annars vegar og sunnan Þorbjarnar hins vegar. Veðurstofa Íslands greinir frá.

Í dag hafa mælst færri skjálftar á svæðinu miðað við undanfarna daga. Það er vegna hvassviðris sem hefur áhrif á næmni jarðskjálftamæla til þess að nema allra minnstu skjálftana. Fram á nótt er áfram gert fyrir að veður hafi áhrif á næmni jarðskjálftakerfis Veðurstofunnar en ekki önnur mælitæki sem nýtt eru til vöktunar á svæðinu.

Aflögunargögn sýna að landris við Svartsengi heldur stöðugt áfram. Það bendir til þess að kvika heldur áfram að safnast fyrir undir Svartsengi. Líkanreikningar áætla að um 18 milljón rúmmetrar af kviku hafa bæst þar við frá 16. mars þegar síðasta eldgos hófst. Heildarrúmmál kviku undir Svartsengi er nú meira en það hefur verið fyrir síðustu atburði.

Engin merki eru um að hægt hafi á kvikusöfnun. Þetta þýðir að þrýstingur í kerfinu er að aukast og því er ekki hægt að áætla annað en að áfram séu töluverðar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni. Þó er töluverð óvissa um hvenær það verður en fyrirvarinn á því gæti orðið mjög stuttur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Graph_inflation_mogi_is24052024

Línuritið sýnir áætlað magn kviku sem hefur bæst við undir Svartsengi á milli þeirra eldgosa eða kvikuhlaupa sem hafa orðið frá því í nóvember 2023. Þær örlitlu breytingar sem sjást á línuritinu eru innan skekkjumarka og hafa sést áður á kvikusöfnunarferlinu.