Laugardagur 4. september 2004 kl. 18:48
Um 15.000 manns í miðbæ Keflavíkur

Lögregla telur að um 15.000 manns hafi verið í miðbæ Keflavíkur í dag, en þá stóðu yfir hátíðarhöld í tilefni Ljósanætur. Búist er við því að sá mannfjöldi tvöfaldist í kvöld þegar efnt verður til kvölddagskrár sem nær hámarki með flugeldasýningu kl. 22 og þegar ljósin verða kveikt á Berginu. Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Bragi yfir fólksfjöldann í dag.