Um 100 útskrifaðir hjá Keili í gær

Útskrifaðir voru 97 nemendur á vegum Keilis í gær, föstudag, eins og við grendum frá hér á vf.is fyrr í dag. Um er að ræða 73 nemendur úr fjarnámi Háskólabrúar, 21 nemandi í flugumferðarstjórn og þrír úr bóklegu atvinnuflugmannsnámi. Þar með hafa 724 nemendur hlotið brautskráningarskírteini frá Keili á þeim tæpu fjórum árum sem skólinn hefur starfað.
Fjarnámshópurinn kemur víða að.  Keilir hefur þróað einstaklega góða tækni í fjarnámi sem gerir fólki kleift að stunda nám að miklu leyti á netinu við mjög góð gæði og nánum tengslum við kennara.  Í flugumferðarstjórninni náði 21 nemandi alla leið, þ.e. að komast í gegnum þær síur sem nám í flugumferðarstjórn felur í sér.
Fram kom í máli Hjálmars Árnasonar, framkvæmdastjóra Keilis, að nemendur eru nú tæplega 600 talsins.  Taldi hann mikilvægt að sinna ungu fólki vel  - ekki síst á tímum kreppu – svo við lentum ekki í sömu ógöngum og Finnar á sínu tíma.  Unga fólkið hreinlega gleymdist þar á tímum kreppunnar með óbætanlegum skaða fyrir samfélagið.
Viðurkenningar voru veittar:  Frosti Heimisson fyrir gott framlag við uppbyggingu námsbrautar í flugumferðarstjórn, Karen Axelsdóttir dúxaði í flugumferðarstjórn með einkunnina 9,83.  Þá dúxaði  Snjólaug Guðrún Jóhannesdóttir á Háskólabrúnni.  Hlutu þau öll viðurkenningu fyrir vikið og Snjólaug Guðrún flutti skörulega kveðjuræðu fyrir hönd nemenda.
Jógvan Hansen, söngvari og fyrrum nemandi á Háskólabrú söng í upphafi og við lok athafnar.
Keilir starfar nú á fjórum meginsviðum:  Háskólabrú, Orku- og tækniskóla, Heilsuskóla og Flugakademíu.  Innritun fyrir næstu önn er hafin á www.keilir.net.
Skoða stóra útskriftarmynd hér.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				