Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Úlpuþjófar grunaðir um skipulagða glæpastarfsemi
Þriðjudagur 2. nóvember 2021 kl. 11:20

Úlpuþjófar grunaðir um skipulagða glæpastarfsemi

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir tveimur erlendum karlmönnum sem grunaðir eru um skipulagða glæpastarfsemi. Þeir urðu uppvísir að því að stela úlpum úr verslun Bláa Lónsins í síðustu viku og öryggismyndavélar sýndu að þangað höfðu þeir lagt leið sína nokkrum sinnum áður í sama tilgangi. Andvirði fatnaðarins sem stolið var hleypur á hundruðum þúsunda króna.

Lögreglan á Suðurnesjum handtók sex manns í kjölfarið. Rannsókn hennar leiddi í ljós að mikið magn meints þýfis fannst í fórum fólksins, að mestu fatnaður og ilmvötn. Um var að ræða dýra merkjavöru. Mennirnir tveir voru í framhaldinu úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. nóvember sem framlengt var í gær til 8. nóvember.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ekki er unnt að veita frekari upplýsinga um málið að svo stöddu.