Týsvellir 1 Ljósahús Reykjanesbæjar 2007
Týsvellir 1 var valið Ljósahús Reykjanesbæjar við hátíðlega athöfn í Gryfjunni í Duushúsum í gær.
Fjöldi tilnefninga bárust að venju í samkeppnina um Ljósahús Reykjanesbæjar 2007 og veittar voru viðurkenningar í ýmsum flokkum. Hitaveita Suðurnesja veitti verðlaunahöfum í 1. - 3. sæti afslátt á rafmagnsnotkun sem eflaust mun koma sér vel.
Mesta furða er hversu vel jólaskreytingarnar í bænum hafa staðið af sér óveðrið síðustu daga. Tillaga Árna bæjarstjóra í gær um að veita verðlaun fyrir best festu jólaskreytinguna vakti því kátínu viðstaddra.
Hægt er að nálgast kort af tilnefndum húsum og verðlaunahöfum með því að smella hér.
Eftirtaldir hlutu viðurkenningu:
Ljósahús 2007:
1. sæti Týsvellir 1
2. sæti Hraunsvegur 8
3. sæti Ásgarður 1
Parhús: Gónhóll 12 - 14
Fallegasta skreytta gatan: Norðurvellir
Jólahús barnanna: Túngata 14
Nýstárlegar jólaskreytingar: Bragavellir 3
Fallegt samspil lýsinga úti og inni: Miðgarður 2
Sérstakar jólakveðjur frá Reykjanesbæ:
Framnesvegur 18
Hamragarður 9
Þverholt 18
Jólagluggi 2007
1. sæti Gleraugnaverslun Keflavíkur
2. sæti Verslunin Cabo
3. sæti Skóbúðin HH skór
Efri mynd: Týsvellir 1.
Neðri mynd: Handhafar verðlaunanna við afhendinguna í gær ásamt Árna Sigfússyni, bæjarstjóra, Júlíusi Jónssyni, forstjóra HS og Steinþóri Jónssyni, formanni valnefndarinnar.
VF-myndir: elg.