HSS
HSS

Fréttir

Týndist á leið frá Keflavík
Föstudagur 12. september 2014 kl. 10:25

Týndist á leið frá Keflavík

Leit er að hefjast á Græn­landi að lít­illi einka­flug­vél sem ekk­ert hef­ur spurst til síðan í gær. Vél­in var á leið frá Kefla­vík og átti að lenda í Kul­usuk klukk­an 14 að staðar­tíma í gær. Frá þessu er greint á mbl.is og vísað í frétt KRN. Þar segir að flugmaður­inn hafi verið í sam­bandi við flug­um­sjón skömmu áður en hann átti að lenda í Kul­usuk. Þegar vél­in kom ekki til lend­ing­ar á rétt­um tíma var stjórn­stöð björg­un­ar­mála virkjuð. Mik­il þoka og rok var á þessu svæði og því þurfti af fresta leit þar til í morg­un.

Björg­un­arþyrla er að fara í loftið á Græn­landi en mjög slæmt veður var á flug­leiðinni í gær og auk þess er vél­in án rat­sjár, sam­kvæmt frétt græn­lenska út­varps­ins, KRN.

Bílakjarninn
Bílakjarninn