HSS
HSS

Fréttir

Tvöföldun Reykjanesbrautar eykur öryggi viðbragðsaðila á slysavettvangi
Mánudagur 23. ágúst 2004 kl. 19:59

Tvöföldun Reykjanesbrautar eykur öryggi viðbragðsaðila á slysavettvangi

Brunavarnir Suðurnesja fagna fyrsta áfanga tvöföldunar Reykjanesbrautar.  Með þessari opnun er mikill áfangasigur unninn í áralangri baráttu fyrir öruggari Reykjanesbraut.  Þetta segir Sigmundur Eyþórsson, slökkvliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja í pistli á vef Brunavarna Suðurnesja, www.bs.is
Fimmtudaginn 29. júlí urðu merk tímamót í samgöngum á Suðurnesjum þegar samgönguráðherra, Hr. Sturla Böðvarsson, opnaði fyrir umferð inná tvöföldun Reykjanesbrautar. Þessi rúmlega 12 kílómetra vegakafli, sem nær að vestanverðu um 3 km. austan Vogaafleggjara að mörkum Hafnarfjarðar, er fyrsti áfangi í tvöföldun Reykjanesbrautar.  Nú eru einungis um 13 kílómetrar eftir til að tvöföldun nái frá landamörkum Vatnsleysustrandahrepps og Hafnarfjarðar til Reykjanesbæjar og skal þeim áfanga lokið fyrir árið 2007, samkvæmt gildandi vegaáætlun. Þá er einnig í sömu áætlun gert ráð fyrir að ljúka alfarið tvöföldun Reykjanesbrautar árið 2010.  Framtakssamur áhugahópur á Suðurnesjum um aukið öryggi á Reykjanesbraut, undir forystu Steinþórs Jónssonar, hefur unnið gott frumkvöðlastarf og rökstutt dyggilega þörf fyrir flýtingu þessara framkvæmda og bindum við vonir um að við endurskoðun Alþingis á vegaáætlun leiði til þess að framkvæmdum á Reykjanesbraut verði lokið mun fyrr. Við hvetjum þingmenn sem og sveitarstjórnarmenn til að hvetja stjórnvöld til að flýta framkvæmdum og fyrirbyggja fleiri alvarleg umferðaróhöpp. 
Undirritaður bendir á, að með tvöföldun Reykjanesbrautar er öryggi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, sem og annarra viðbragðsaðila á slysavettvangi þar, aukið til muna. Aðkoma neyðarbíla verður greiðari, umferðarstjórnun auðveldari og slysavettvangurinn aðgengilegri og rýmri.

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn Brunavarna Suðurnesja fara árlega yfir 650 sjúkraflutninga um Reykjanesbraut til Reykjavíkur. Enn hafa sjúkrabifreiðar ekki lent í alvarlegum umferðaóhöppum til þessa, þar sem alvarleg slys hafa orðið á fólki.   Reynslan sýnir að alvarlegustu slysin verða þegar bílar mætast og keyra saman, úr gagnstæðum áttum.  Í mars árið 2002, varð harður árekstur milli fólksbifreiðar og sjúkrabifreiðar í hæðinni austan við Kúagerði. Ökumaður var einn í fólksbifreiðinni, sem var á leið til Reykjavíkur, en þrír voru í sjúkrabifreiðinni þ.e. tveir sjúkraflutningamenn og læknir á leið til Reykjanesbæjar frá Reykjavík. Áreksturinn varð með þeim hætti að fólksbifreiðinni var ekið í veg fyrir sjúkrabílinn sem var að koma, eins og áður segir úr gagnstæðri átt. Veður var gott en færðin varasöm, hálkublettir  og snjókrapi. Fólksbifreiðin var á sumardekkjum og rann til í hálkunni, yfir á öfugan vegarhelming, í veg fyrir sjúkrabílinn með fyrrgreindum afleiðingum.
Sjá nánar meðfylgjandi myndir sem skýra nánar frá vettvangi og ættu að vera víti til varnaðar og áhersla á hversu brýnt er að flýta framkvæmd og ljúka tvöföldun síðari áfanga.
Undir þetta ritar Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja.
Bílakjarninn
Bílakjarninn