Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tvöföldun brautarinnar stöðvast
Fimmtudagur 11. desember 2003 kl. 10:00

Tvöföldun brautarinnar stöðvast

Tvöföldun Reykjanesbrautar verður á meðal forgangsverkefna endurskoðaðrar samgönguáætlunar að sögn Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. Samgönguráðherra segir að í ráðherratíð sinni hafi tvöföldun Reykjanesbrautar hafist og að sá áfangi sem nú er unnið að hafi gengið vel og sé á undan áætlun. „Framvinda verksins mun síðan ráðast af fjárveitingum sem við munum veita til vegamála. Það liggur fyrir hvað verður gert á næsta ári. Nú er unnið að endurskoðun á samgönguáætlun og þar vil ég minna á að tvöföldun Reykjanesbrautar er á meðal forgangsverkefna. Þetta er það eina sem ég vil segja um málið á þessu stigi,“ sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra í samtali við Víkurfréttir.
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri sagði í samtali við Víkurfréttir að endurskoðun samgönguáætlunar færi fram á Alþingi næsta vetur, þ.e. eftir ár. Slík endurskoðun fer fram á tveggja ára fresti. Það er því ljóst að miðað við þessi ummæli samgönguráðherra og vegamálastjóra að framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar munu stöðvast.

Í frétt Morgunblaðsins í síðustu viku er fjallað um að vegafé verði lækkað um 1,5 milljarða króna í fjárlögum næsta árs. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að lækkun fjárveitinga í Norðaustur,- Norðvestur- og Suðurkjördæmi nemi um 300 milljónum króna í hverju kjördæmi.
Samgönguráðherra sagði aðspurður um áhrif á einstakar framkvæmdir að ekkert yrði hróflað við tvöföldun Reykjanesbrautar. Steinþór Jónsson forsvarsmaður áhugahóps um örugga Reykjanesbraut undrast ummæli samgönguráðherra og lítur þannig á að um einhvern misskilningi hljóti
að vera að ræða. „Það er ekkert fé bundið í Reykjanesbraut á næsta ári og því undrast ég ummæli ráðherra um að ekki verði hróflað við tvöfölduninni. Hvernig er hægt að segja að ekki verði skorið niður fjármagn sem er ekki til staðar. Hönnun á síðasta áfanga tvöföldunar er þegar lokið og ekkert því til fyrirstöðu að hefja framkvæmdir og klára þær. Það hlýtur að vera kominn tími til að þingmenn svæðisins hittist og tali saman og stjórnvöld verði krafin svara um framhaldið,“ sagði Steinþór í samtali við Víkurfréttir.

Jón Gunnarsson þingmaður Samfylkingarinnar

Hver er staðan á málinu ?
Það liggur ekkert fyrir og engir fjármunir til að flýta þessu eitt eða neitt. Það er verið að tala um að breikkun brautarinnar ljúki árið 2014.

Finnst þér að það ætti að flýta framkvæmdinni?
Mér finnst það engin spurning úr því menn byrjuðu á þessu að það eigi að ljúka breikkun brautarinnar. Það eru allir sammála um að það þurfi að gera og ég sé ekki tilganginn með því að draga framkvæmdina.

Nú hefur áhugahópur um örugga Reykjanesbraut komið fram með þá staðreynd að einn einstaklingur látist með rúmlega þriggja mánaða millibili. Hvað finnst þér um þá staðreynd?
Við vitum að Reykjanesbraut er í hópi þeirra vega þar sem flest alvarleg slys verða.  Við verðum að gera allt til þess að reyna að breyta því og tvöföldun brautarinnar miðar einmitt að því

Ætlar þú, sem þingmaður Suðurkjördæmis, beita þér eitthvað í þessu máli?
Ég mun örugglega gera það.
 
Muntu ræða við samgönguráðherra eða þingmannahóp Suðurnesja?
Ég vona allavega að þingmannahópurinn sé allur tilbúinn til að ýta á eftir þessu. Ég mun ýta á eftir málinu.


Hjálmar Árnason þingmaður Framsóknarflokksins


Hvernig líst þér á stöðuna eins og hún er í dag?
Ég er ánægður með það sem gert hefur verið. Það hefur náðst mikill áfangasigur sem var ekki átakalaus og trúi því að við munum halda áfram að vinna slíka sigra.


Er samstaða þingmannahóps Suðurnesja sterk í þessu máli?
Ef ekki er samstaða innan þingmannahópsins þá er málið dautt. Í öllum stærri verkefnum þá verður þingmannahópurinn að snúa bökum saman og ég trúi ekki öðru en að slík samstaða sé fyrir hendi.


Á 99 daga fresti lætur einstaklingur lífið á Reykjanesbraut. Áttaðir þú þig á þessum tölum?
Já þetta eru tölur sem við höfum farið vel yfir og í úttektum vegagerðarinnar kom í ljós að Reykjanesbrautin í þriðja sæti hvað varðar áhættu, á eftir Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi. Það breytir samt ekki þeirri staðreynd að eitt dauðaslys er einu dauðaslysi of mikið. Umferð á bara eftir að vaxa á Reykjanesbraut, m.a. vegna aukinnar ferðaþjónustu.
Munt þú beita þér í þessu máli á næstunni?
Ég held áfram að vinna í þessu máli eins og ég hef verið að gera og engan bilbug að finna á mér í því.

Grétar Mar Jónsson varaþingmaður Frjálslynda flokksins
Hvernig líst þér á stöðu mála í sambandi við tvöföldun Reykjanesbrautarinnar?
Það er mikið atriði fyrir okkur að fá flýtiframkvæmd á tvöföldun Reykjansbrautar.
Margir þingmenn tala um að samstaða þingmannahópsins skipti miklu máli. Telurðu þessa samstöðu vera til staðar í málinu?
Ég get ekki ímyndað mér annað en auðvitað kemur að því að forgangsraða peningum. Ég segi fyrir mig og tel að það eigi að setja fjármagn í tvöföldunina strax til að halda áfram.
Á 99 daga fresti lætur einstaklingur lífið á Reykjanesbraut. Áttaðir þú þig á þessum tölum?
Já maður áttar sig á þessum tölum. Þegar ég var í Stýrimannaskólanum keyrði ég brautina á hverjum degi, í öllum veðrum og ég veit hvaða hættu er um að ræða.
Munt þú sem þingmaður Suðurkjördæmis beita þér í málinu?
Ég mun gera það sem ég get og vekja athygli á þessu. Við erum í minnihluta sem stendur, en á meðan við erum í minnihluta getum við lítið annað gert en bent á að það sé nauðsynlegt að gera þetta.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024