Tvöföldun á samgönguáætlun hið fyrsta
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar ýtir við Ráðherra samgöngumála og Vegamálastjóra
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar fór bæjarstjórn fram á það við Ráðherra samgöngumála og Vegamálastjóra að tvöföldun Reykjanesbrautar verði sett á samgönguáætlun hið fyrsta. Eftirfarandi bókun um málið má sjá hér að neðan. Þar var farið sérstaklega fram á að hafist yrði handa við að tengja Hafnaveg við hringtorgið við Stekk, setja hringtorg við gatnamót Þjóðbrautar og Reykjanesbrautar og við gatnamót Aðalgötu og Reykjanesbrautar.
„Reykjanesbær hefur undanfarin ár í samstarfi við Vegagerðina unnið að því að útrýma slysagildrum á Reykjanesbrautinni sem eftir brotthvarf bandaríkjahers sker bæinn í tvennt með tilheyrandi gatnamótum og tengipunktum. Þessar slysagildrur hafa verið greindar eftir slysatölum frá Umferðarstofu. Frá 2009 hafa framkvæmdir við hringtorg Grænás ásamt undirgöngum þar og hringtorgi við gatnamótin við Stekk stórbætt öryggi vegfarenda. Þessi umferðarmannvirki hafa sannað gildi sitt og hafa engin slys orði á fólki þar síðan. Þá stendur yfir útboð í gerð undirganga fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur undir Reykjanesbraut við Hafnaveg og skal verkinu lokið 15. nóvember.
Á undanförnum árum hefur umferðin á þessum kafla Reykjanesbrautar stóraukist bæði vegna íbúafjölgunar og stórauknum straumi ferðamanna. Nú er svo komið að ekki er hægt að bíða lengur með að tvöfalda þennan vegakafla sem telja þrjú svokölluð „T“ gatnamót. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar fer fram á það við Ráðherra samgöngumála og Vegamálastjóra að tvöföldun Reykjanesbrautar verði sett á samgönguáætlun hið fyrsta en þar til henni verði lokið verði tafarlaust farið í eftirfarandi framkvæmdir.
1. Tengja Hafnaveg við hringtorgið við Stekk.
2. Setja hringtorg við gatnamót Þjóðbrautar og Reykjanesbrautar.
3. Setja hringtorg við gatnamót Aðalgötu og Reykjanesbrautar.
Með því að fara í þessar framkvæmdir verður öllum megin slysagildrum á þessum einum fjölfarnasta vegarkafla útrýmt og öryggi vegfarenda á Reykjanesbraut stóraukið. Þá mun einnig vinnast tími til að vinna að endanlegri lausn sem er tvöföldun Reykjanesbrautarinnar.“
Bæjarstjórn samþykkir ofangreinda bókun 11-0.