HSS
HSS

Fréttir

Tvöföld birting auglýsingar olli misskilningi
Föstudagur 31. október 2003 kl. 16:29

Tvöföld birting auglýsingar olli misskilningi

Í yfirlýsingu sem var að berast frá upplýsingaskrifstofu Varnarliðsins kemur fram að auglýst var eftir starfsfólki í 3 stöður á veitingastað innan Keflavíkurflugvallar. Víkurfréttir greindu frá því fyrr í dag að um 6 stöður hafi verið að ræða og kemur fram í yfirlýsingunni að tvöföld birting með tölvupósti hafi valdið því að ranglega var ályktað að um 6 störf væri að ræða. Yfirlýsing Varnarliðsins vegna málsins:  „Auglýst var eftir starfsfólki í þrjú störf, en ekki sex, í eldhúsi  veitingastaðarins Top of the Rock. Svo virðist sem tvöföld birting sömu  auglýsingar með tölvupósti hafi valdið því að ranglega var ályktað að um  6 störf væri að ræða. Veitingastaðir varnarliðsins eru ásamt verslun og fleiri þjónustustofnunum reknir fyrir sjálfsaflafé stofnananna en almennt mötuneyti þar sem var verið að fækka störfum er rekið fyrir fjárlagafé. Niðurskurður í rekstri flotastöðvar varnarliðsins nær einungis til fjárframlaga bandaríska ríkisins og því óþarft að fækka fólki í störfum sem greidd eru af sjálfsaflafé stofnana eins og í þessu tilviki. Að sjálfsögðu koma þeir starfsmenn sem nú hefur verið sagt upp störfum hjá flotastöðinni fyrst til greina þegar kemur að því að velja í aðrar stöður sem lausar eru líkt og í þessu tilviki.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn