HSS
HSS

Fréttir

Tvö umferðarslys á Reykjanesbraut við Stekk
Mánudagur 24. október 2005 kl. 01:29

Tvö umferðarslys á Reykjanesbraut við Stekk

Í gær, sunnudag, kl 13:35 var tilkynnt um umferðarslys við gatnamót Reykjanesbrautar og Stekks. Þar hafði orðið umferðaróhapp með lítilli rútu sem var ekið vestur Reykjanesbraut og fólksbifreið sem var ekið af Stekk. Hafði fólksbifreiðinni verið ekið í hlið rútunnar en minnstu munaði að rútan færi á hliðina við áreksturinn. Níu farþegar voru í rútunni en ökumaður og tveir hundar í fólksbifreiðinni. Enginn slasaðist við óhappið. Fólksbifreiðin var mikið skemmd og var fjarlægð af vettvangi með kranabifreið.

Klukkan 18:15 á sunnudag var aftur tilkynnt um umferðarslys við gatnamót Reykjanesbrautar og Stekks. Bifreið var ekið austur Reykjanesbraut og hugðist ökumaður beygja inn á Stekk. Ók hann þá í veg fyrir bifreið sem var ekið vestur Reykjanesbraut. Áreksturinn var harður og var einn aðili fluttur af vettvangi með sjúkrabifreið. Báðar bifreiðarnar voru óökufærar eftir óhappið.
Bílakjarninn
Bílakjarninn