Tvö umferðaróhöpp á Grindavíkurveginum
Tvö umferðaróhöpp urðu á Grindavíkurveginum í morgun samkvæmt fréttasíma lögreglunnar í Keflavík. Er ástæðan rakin til mikillar hálku. Meiðsli á fólki voru ekki mikil en einum var þó ekið á sjúkrahús til frekari skoðunar.
Rólegt var hjá lögreglu í gærkvöldi en að sögn vaktmanna voru þetta bara hinir venjulegu helgarsnúningar sem lögreglan þurfti að sinna.
Rólegt var hjá lögreglu í gærkvöldi en að sögn vaktmanna voru þetta bara hinir venjulegu helgarsnúningar sem lögreglan þurfti að sinna.