HSS
HSS

Fréttir

Tvö staðfest svínaflensutilfelli í Grindavíkurliðinu
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl. 17:19

Tvö staðfest svínaflensutilfelli í Grindavíkurliðinu

- hafa óskað eftir frestur á deildarleik nk. sunnudags vegna veikinda leikmanna.

Nú hefur verið staðfest að tveir af þeim níu leikmönnum knattspyrnuliðs Grindavíkur sem eru rúmliggjandi með flensu hafa verið greindir með svínaflensu. Beðið er niðurstöðu úr sýnum hjá hinum sjö leikmönnum liðsins. Fyrr í dag sendi Knattspyrnudeild Grindavíkur beiðni til mótanefndar KSÍ um frestun á leik Grindavíkur og ÍBV sem fram á að fara nk. sunnudag. Beiðnin er eftirfarandi:

„Knattspyrnudeild Grindavíkur óskar eftir því að leikur Grindavíkur og ÍBV í Pepsi-deild karla, sem fram á að fara næsta sunnudag, verði frestað um óákveðinn tíma vegna inflúensufaraldurs sem gripið hefur um sig hjá liðinu.

Leikmenn hafa verið að hrynja niður hver á fætur öðrum, þeir fyrstu síðasta mánudag  en í dag eru 10 leikmenn komnir með inflúensueinkenni, sá síðasti veiktist nú eftir hádegi.

Staðfest er af lækni að einn leikmaður, Óli Stefán Flóventsson, er með svokallaða svínaflensu. Niðurstöðu úr fleiri sýnum er að vænta á morgun. Af samtölum mínum við lækna er ráðlagt að þeir sem greinist með svínaflensu séu í eina viku í nokkurs konar sóttkví. Þeir telja sömuleiðis óráðlegt að spila leikinn á sunnudaginn því það opnar smitleiðir.

Óski KSÍ eftir læknisvottorðum er það sjálfsagt mál en það  gæti tekið einhvern tíma að safna þeim saman því flestir leikmennirnir eru rúmliggjandi.

Rétt er að taka fram að okkur er nauðugur einn kostur að biðja um þessa frestun. Hún er alls ekki í okkar þágu því við missum einn af okkar lykilmönnum, Boga Rafn Einarsson, í nám til Bandaríkjanna strax eftir helgi. Ástandið er einfaldlega þannig að það er er ekki forsvaranlegt að spila leikinn á sunnudaginn við þessar aðstæður.

Virðingarfyllst,

Þorsteinn Gunnarsson
Formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur“

Bílakjarninn
Bílakjarninn



Mynd: Grindvíkingar hafa skorað og skorað í tveimur síðustu leikjum. Mörkunum hefur verið fagnað vel en uppskeran er hins vegar flensa sem hefur sent nær allt Grindavíkurliðið í rúmið með flensu sem er bráðsmitandi. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi