Kaffi Duus Jólahlaðborð
Kaffi Duus Jólahlaðborð

Fréttir

Tvímilljónasti farþegi Icelandair á árinu
Á myndinni eru Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, Þórunn Anna Karlsdóttir og Nanna Hansdóttir, móðir hennar, en þær mæðgur voru samferða á leið til Bandaríkjanna. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Sunnudagur 23. desember 2012 kl. 02:23

Tvímilljónasti farþegi Icelandair á árinu

- hlaut tvær milljónir vildarpunkta. Fær tugi utanlandsferða fyrir punktana.

Icelandair flutti í gærdag 2 milljónasta farþegann á árinu. Farþeginn reyndist vera Þórunn Anna Karlsdóttir, sem var á leið til Boston, með flugi Icelandair FI631, sem fór frá Keflavíkurflugvelli kl. 17.00 síðdegis í gær. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, afhenti henni glaðning við innritun í flugið; blómvönd og tvær milljónir vildarpunkta Saga Club.

Þetta er í fyrsta sinn í 75 ára sögu Icelandair sem farþegafjöldinn í áætlunarflugi fer yfir tvær milljónir á einu ári. Eldra metið var sett á síðasta ári þegar farþegar voru tæplega 1,8 milljónir. Samkvæmt áætlunum félagsins fyrir árið 2013 mun farþegum fjölga um 300 þúsund og verða um 2,3 milljónir á næsta ári. Farþegafjöldi Icelandair hefur vaxið mjög á undanförnum árum eftir samdráttinn sem varð 2008 og 2009 vegna efnahagshrunsins.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Nokkur umræða hefur orðið að undanförnu, m.a. á samfélagsmiðlum, um það hvernig rétt sé að segja 2 milljónasti farþeginn. Flestir virðast á þeirri skoðun að einfaldast og fallegast sé að nota orðið „tvímilljónasti“ frekar en aðra kosti, s.s. tvö milljónasti, tvær milljónasti, tveggja milljónasti eða annar milljónasti.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100