Tvíhandleggsbrotnaði eftir fall úr fiskikari
Það óhapp varð í Grindavík á dögunum, að maður féll úr fiskikari og tvíhandleggsbrotnaði. Verið var að vinna að uppsetningu á flúorljósum í geymsluhúsnæði þegar óhappið varð. Við verkið var notaður lyftari og hafði fiskikari verið komið fyrir á bómu hans til að auðvelda uppsetningu ljósanna.
Sankvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Suðurnesjum fór maðurinn, sem um ræðir, ofan í fiskikarið og var hífður upp í um fjögurra metra hæð. Heyrðist þá öðrum, sem stjórnaði lyftaranum, að einhver væri að banka, fór út úr tækinu, en rak sig um leið í stýripinna fyrir bómuna. Við það fóru spaðar lyftarans niður, sturtuðu fiskikarinu af og féll maðurinn í gólfið með karinu. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þaðan á Landspítala.