Tveir teknir úr umferð
- höfðu neytt amfetamíns og kannbisefna.
Tveir ökumenn voru teknir úr umferð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni vegna gruns um fíkniefnaakstur. Staðfestu sýnatökur að annar þeirra hafði neytt amfetamíns og hinn kannabisefna. Þegar athugað var með stöðu skoðunar og trygginga á bifreiðinni, sem fyrrnefndi ökumaðurinn ók kom í ljós að skráningarmerkin, sem á henni voru, tilheyrðu allt annarri bifreið. Við nánari athugun kom á daginn að farþegi í bílnum var skráður eigandi bifreiðarinnar sem skráningarmerkin tilheyrðu.