Tveir teknir með fíkniefni
	Tveir karlmenn voru teknir með fíkniefni í fórum sínum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Annar þeirra var stöðvaður í akstri. Sýnatökur á lögreglustöð staðfestu að hann hefði neytt amfetamíns, kókaíns, metamfetamíns og kannabis. Hann ók jafnframt sviptur ökuréttindum. Við leit í bifreið hans fannst amfetamín, auk muna sem hvorki hann né farþegi, sem með honum var,  gátu gert grein fyrir.
	
	Þá fann lögregla umtalsvert magn af amfetamíni í frystiskáp í eldhúsi húsnæðis í umdæminu. Karlmaður á þrítugsaldri viðurkenndi eign sína á því, sem og muna til að útbúa efni fyrir neyslu. Í húsnæðinu var einnig fyrir annar maður, sem var eftirlýstur af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Allir voru þessir einstaklingar handteknir og vistaðir á lögreglustöð.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				