Sunnudagur 4. júní 2006 kl. 10:37
Tveir teknir fyrir ölvunarakstur
Lögreglan í Keflavík tók 2 ökumenn grunaða um að vera undir áhrifum áfengis við akstur í nótt. Þrír ökumenn voru stöðvaðir fyrir að aka á 117, 122 og 125 km hraða þar sem leyfður er 90 km hraði. Nokkur ölvun var í miðbæ Reykjanesbæjar eftir að veitingarstaðir lokuðu en allt fór friðsamlega fram.