Laugardagur 8. mars 2003 kl. 11:04
Tveir teknir fyrir ölvunarakstur

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í nótt vegna ölvunarakstur og missa þeir ökuréttindi sín í töluverðan tíma. Þá var umferðaróhapp á Reykjanesbrautinni við Fitjar þegar tveir bílar lentu í minniháttar árekstri. Engin slys urðu á fólki.Í gær varð vinnuslys í Saltveri við Brekkustíg í Njarðvík þegar loðnubretti datt af lyftara og á fætur stúlku sem vann á staðnum. Stúlkan var flutt á sjúkrahús til nánari skoðunar en í ljós kom að hún var ekki brotin.