Tveir teknir á of miklum hraða
Í gærdag voru tveir ökumenn kærðir fyrir fyrir að aka of hratt. Sá er hraðar ók var mældur á 117 km hraða og hinn á 113 km hraða þar sem leyfður hraði er 90 km.
Næturvaktin var frekar róleg hjá lögreglu. Maður datt niður stiga í húsi í Grindavík og var fluttur á HSS þar sem var gert að meiðslum hans. Hann fór heim að því loknu.