Laugardagur 23. janúar 2016 kl. 06:00
				  
				Tveir ökumenn undir áhrifum fíkniefna
				
				
				
	Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði akstur tveggja ökumanna í vikunni, sem báðir reyndust vera undir áhrifum fíkniefna.  Bifreið annars þeirra reyndist að auki vera á stolnum skráningarnúmerum. Hinn hafði neytt amfetamíns, kókaíns og kannabisefna, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu.