Krambúðinn 4-7 sept
Krambúðinn 4-7 sept

Fréttir

Tveir óku ofan í brunn
Mánudagur 11. janúar 2016 kl. 10:41

Tveir óku ofan í brunn

Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Tveir ökumenn urðu fyrir því óhappi að aka ofan í brunn sem var opinn á Aðalgötu í Keflavík. Önnur  bifreiðin skemmdist það mikið að fjarlægja þurfti hana með dráttarbifreið. Lögregla hafði þegar samband við Reykjanesbæ vegna málsins. Þá valt vörubifreið þegar verið var að hífa frístundahús upp á pall hennar. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum.

Auk óhappanna voru átta ökumenn staðnir að hraðakstri í umdæminu. Flestir þeirra voru á ferð eftir Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 125 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25