Tveir grunaðir um fíkniefnaakstur
Lögreglumenn á Suðurnesjum höfðu í nótt afskipti af tveimur ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undír áhrifum fíkniefna. Þá var einn ökumaður stöðvaður grunaður um ölvunarakstur.
Sem kunnungt er voru sjö ökumenn teknir í fyrrinótt vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Fjórir þeirra voru að auki próflausir.