Tveir fluttir á slysadeild eftir bílveltu á Reykjanesbraut
Tveir voru fluttir á slysadeild á sjúkrahús í Reykjavík eftir bílveltu við Strandarheiði á Reykjanesbraut um klukkan 5:20 í morgun. Að sögn mbl.is voru þrír í bifreiðinni, en einn slapp án meiðsla. Hinir tveir kvörtuðu yfir eymslum og baki og hálsi. Af þeim sökum var ákveðið að veita þeim aðhlynningu á sjúkrahúsi.