Tveir dópaðir undir stýri
Tveir ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í gær og í nótt. Í öðru tilfellinu fannst einnig lítilræði af meintum kannabisefnum og áhöld til fíkniefnaneyslu þannig að fjórir farþegar í bílnum voru einnig handteknir og færðir á lögreglustöð en var sleppt eftir yfirheyrslu.
Þá var karlmaður handtekinn um miðjan dag í gær vegna ölvunar á almannafæri. Hann hafði verið til ónæðis víðsvegar um Reykjansebæ en fékk að sofa úr sér áfengisvímuna í fangaklefa lögreglunnar á Suðurnesjum.