Fimmtudagur 2. október 2008 kl. 09:49
Tveir dópaðir í umferðinni
Lögreglan á Suðurnesjum tók tvo ökumenn úr umferð í nótt þar sem þeir höfðu ekið undir áhrifum fíkniefna. Þetta er önnur nóttin í röð þar sem tveir ökumenn eru teknir úr umferð fyrir þessar sakir, en engin var stöðvaður vegna ölvunaraksturs í nótt eða fyrrinótt.