Tveir á hraðferð og tveir undir áhrifum
Tveir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Annar var mældur á 121 km/klst og hinn á 146 km/klst þar sem löglegur hámarkshraði er 90 km/klst.
Þá var einn ökumaður tekinn á Garðbraut í Garði grunaður um ölvun við akstur á bifhjóli og annar var tekinn grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum ávana- og fíkniefna í Reykjanesbæ í nótt.