Bygg
Bygg

Fréttir

Tveir 17 ára uppvísir að innbrotum og bílstuldi
Sunnudagur 15. október 2006 kl. 15:10

Tveir 17 ára uppvísir að innbrotum og bílstuldi

Tveir 17 ára piltar, sem Lögreglan í Keflavík handtók á föstudag, voru látnir lausir í gær eftir að hafa játað á sig nokkur innbrot og bílstuld.

Piltarnir voru handteknir síðdegis á föstudag á stolinni bifreið og fundust í fórum þeirra munir sem þeir gátu ekki gert grein fyrir. Voru þeir vistaðir í fangaklefa á meðan rannsókn fór fram. Á meðan var tilkynnt um tvö innbrot í mannlaus húsnæði í Reykjanesbæ og vaknaði grunur um að piltarnir tveir hefðu verið að verki. Í öðru tilvikinu var um að ræða innbort í félagsheimili þar sem stolið var peningum og í hinu tilvikinu hafði verið brotist inn í íbúðarhús og þaðan stolið fartölu og peningum.

Piltarnir voru síðan látnir lausir í gær eftir að hafa viðurkennt innbrotin og vísað á þýfið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn