HSS
HSS

Fréttir

Tveimur vélum lent vegna veikinda farþega
Þota Lufthansa á Keflavíkurflugvelli um helgina. Ljósmynd: Sigurður B Magnússon
Þriðjudagur 10. mars 2015 kl. 08:00

Tveimur vélum lent vegna veikinda farþega

Flugvél frá Lufthansa varð að lenda á Keflavíkurflugvelli um helgina vegna veikinda farþega. Hún var á leið frá Frankfurt í Þýskalandi til Vancouver í Kanada þegar veikindin komu upp. Farþeginn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.
 
Tveim dögum áður hafði lögreglunni á Suðurnesjum verið tilkynnt um lendingu flugvélar frá Air Canada af sömu ástæðum. Sú vél var á leiðinni frá Heathrow til Toronto þegar farþeginn veiktist. Höfðu læknar um borð gefið honum súrefni og vökva í æð. Hann var einnig fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Bílakjarninn
Bílakjarninn