Tveimur námskeiðum lokið í Eldey
Tveir hópar voru útskrifaðir af námskeiðum í Eldey í vikunni en námskeiðin hafa staðið yfir undanfarnar vikur. Nemendur gerðu sér glaðan dag, kynntu sér verkefni hvors annars og buðu upp á veitingar.
Alls luku 12 manns námskeiði Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í frumkvöðlafræðum og kynntu þeir verkefni sín sem unnin voru á námskeiðinu. Kennari var Brynja Sigurðardóttir og er annað námskeið fyrirhugað eftir jól. Góður rómur var gerður að verkefnunum sem njóta munu stuðnings ráðgjafa Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.
Í stóru smiðjunni í Eldey hafa 11 einstaklingar tekið þátt í Umhverfissmiðju í samstarfi Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Landbúnaðarháskólans.
Þar fengu þeir tilsögn m.a. í hellulögn, gróðurumhirðu og hönnun á útisvæðum. Smiðjan er metin til eininga í Landbúnaðarháskólanum og hafa tveir þátttakendur nú skráð sig í nám þar. Umhverfissmiðjan er í mótun og er
vonast til þess að framhald verði á og námsframboð aukið.
Eldey, frumkvöðlasetur býður upp á aðstöðu fyrir frumkvöðla sem og ýmsa þjónustu í nýsköpun og er Heklan, atvinnuþróunarfélag Suðurnesja þar til húsa en eitt af verkefnum þess er m.a. ráðgjöf til frumkvöðla og fyrirtækja í nýsköpun.