Tveggja ára stúlka og systir hennar í mikilli hættu í Leifsstöð

Jóhann Benediktsson lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli segir við Vísi að mesta mildi hafi verið að ekki fór illa þarna. "Það var snarræði starfsmanns okkar í öryggiseftirlitinu að þakka að þetta varð ekki huganlega að stórslysi," segir Jóhann.
Neyðarhnappakerfinu við innritunina hefur verið breytt þannig að hnapparnir stöðva nú öll færiböndin í einu en ekki bara það sem er við innritunarborðið. Stúlkan virðist ekki hafa áttað sig á því og í stað þess að nota neyðarhnappinn hringdi hún í öryggisgæsluna.
"Áður en því símtali lauk hafði starfsmaður okkar séð beinagrind í gegnumlýsingartækinu á færibandinu. Hann ákvað því að beina farangrinum inn á skoðunarspor," segir Jóhann. "Ef það hefði ekki gerst hefði færbandið aukið mjög hraðann og farið í mikla lofthæð. Við erum þakklátir að slíkt gerðist ekki."
Ferð systranna tveggja á færibandinu stóð aðeins í örfáar mínútur og varð þeim ekki meint af þessu óhappi. Geislunin í gegnumlýsingartækinu er ekki hættuleg eða svipuð og hjá tannlækni.
Vinnueftirlitið var kallað til að skoða vélina. Jóhann Benediktsson segir að væntanlega muni fyrirtækið sem sér um innritun farþega brýna fyrir starfsfólki sínu þær öryggisreglur sem gilda við starf þeirra.
www.visir.is