Tveggja ára skilorð fyrir ýmis brot
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt 22ja ára gamlan Grindvíking í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir umferðarlaga, - fíkniefna, -og umferðarlagabrot og nytjastuld.
Ákærði varð uppvís að akstri undir áhrifum fíkniefna og hafði í fórum sínum 2,39gr af kannabisefnum. Síðastliðið sumar tók hann bifreið í heimildarleysi í Reykjanesbæ og ók henni undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann var stöðvaður á Reykjanesbraut. Þá var hann dæmdur fyrir vopnalagabrot en í fórum hans fannst svokallaður Butterfly hnífur.
Auk fangelsisrefsingar var ákærði sviptur ökuréttinum í 19 mánuði og þarf að greiða 234 þúsund krónur í málskostnað. Í dómsskjölum kemur fram að ákærði eigi ekki að baki sakaferil svo vitað sé. Þá hefur hann sótt meðferð vegna fíkniefnavanda síns.