Bygg
Bygg

Fréttir

Mánudagur 6. október 2003 kl. 17:26

Tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun í Sandgerði

Rúmlega þrítugur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga konu í Sandgerði í janúar á þessu ári. Maðurinn var dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu 600 þúsund krónur í miskabætur, auk málsvarnarlauna og þóknunar til réttargæslumanns að upphæð 600 þúsund krónum.

Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi ásamt öðrum manni ekið konunni heim af skemmtistaðnum Casino í Keflavík til Sandgerðis. Þegar þangað var komið óskaði maðurinn eftir að fá að fara á salerni hjá konunni. Þegar maðurinn kom af salerninu segir konan að hann hafi þröngvað sér til samræðis með valdi og komið fram vilja sínum. Í dómnum kemur fram að konan hafi lamast af hræðslu og ekki getað hreyft sig meðan maðurinn kom fram vilja sínum. Þegar maðurinn var farinn hringdi konan í vinkonur sínar sem komu henni til skoðunar á neyðarmóttöku nauðgunar á Landsspítala – Háskólasjúkrahúsi.

Framburður konunnar þótti trúverðugur fyrir héraðsdómi, en framburður mannsins þótti ótrúverðugur. Segir í dómnum að háttsemi mannsins beri fullkomið virðingarleysi gagnvart kynfrelsi konunnar og að hún hafi orðið fyrir alvarlegu andlegu og tilfinningalegu áfalli, sem komi til með að há henni um ókomna framtíð. Einnig kemur fram í dómnum að konan hafi ekki þekkt manninn neitt og að hún hafi ekki gefið honum neitt tilefni til að ætla að hún vildi hafa við hann kynmök og að hún hafi beðið hann um að hætta, en hann þá neytt aflsmunar og þröngvað hann til kynmaka. Segir í dómnum að maðurinn eigi sér engar málsbætur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn