Sunnudagur 7. janúar 2007 kl. 09:27
Tvær unglingsstúlkur lömdu þá þriðju með kylfu

Tvær unglingsstúlkur, á 15. og 14. aldursári játuðu í gærkvöldi að hafa slegið stúlku á 16. ári í höfuðið með hafnaboltakylfu. Atburðurinn átti sér stað á leikvelli við Ásabraut í Keflavík á tíunda tímanum og hlaut stúlkan skurð á hnakkann. Eftir að hafa leitað læknishjálpar fór stúlkan á lögreglustöð og tilkynnti um verknaðinn. Skömmu síðar hafði lögregla uppi á stúlkunum tveimur og viðurkenndu þær verknaðinn. Málið er í rannsókn.