Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tvær líkamsárásir á aðfararnótt sunnudags
Mánudagur 8. ágúst 2005 kl. 09:36

Tvær líkamsárásir á aðfararnótt sunnudags

Í gærmorgun komu tvö líkamsárásarmál til kasta lögreglunnar í Keflavík.

Í öðru tilvikinu var um að ræða erlendan mann sem starfar á svæðinu, en hann varð fyrir aðkasti þriggja manna á Hafnargötu í Reykjanesbæ. Hann var blóðugur í framan og var færður á HSS til aðhlynningar.

Talið er að hann sé nefbrotinn, en ekki er vitað hverjir voru þar að verki.

Þá var lögregla kölluð að hópslagsmálum í Sandgerði þar sem þrír menn réðust að 16 ára pilti með þeim afleiðingum að tönn brotnaði í honum. Lögregla yfirheyrði þá sem voru þar að verki.

Sömu nótt var einn ökumaður stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024